Á Sprengisandi

Á Sprengisandi

Ríðum, ríðum,og rekum yfir sandinn
rennur sól á bak við Arnarfell.
Hér á reiki er margur óhreinn andinn
úr því fer að skyggja á jökulsvell.
;Drottinn leiði drösulinn minn
drjúgur verður síðasti áfanginn;

Þey, þey, þey, þey, þaut í holti tófa
þurran vill hún blóði væta góm,
eða líka einhver var að hóa
undarlega digrum karlaróm.
;Útilegumenn í Ódáðahraun
eru kannski að smala fé á laun;

Ríðum, ríðum rekum yfir sandinn
rökkrið er að síga á Herðubreið.
Álfadrottning er að beisla gandinn
Ekki er gott að verða á hennar leið.
;Vænsta klárinn vildi ég gefa til
að vera kominn ofan í Kiðagil;