Dýravísur

Hani, krummi, hundur, svín
hestur, mús, tittlingur.
Galar, krunkar, geltir, hrín
Gneggjar, tístir, syngur.

Verður ertu víst að fá
vísu gamli Jarpur.
Aldrei hefur fallið frá
frækilegri garpur.

Þá var taða þá var skjól
þá var fjör og yndi
þá var æska, þá var sól
þá var glatt í lyndi.

Gefðu ungum gæðingum
græna tuggu á morgnunum
Launa þeir með léttfærum
lipru sterku fótunum.

 Hani, krummi, hundur, svín
hestur, mús, tittlingur.
Galar, krunkar, geltir, hrín
gneggjar, tístir, syngur.